Heima og að heiman

Sæl öll.

Afslöppuð helgi en samt nó að gera já þetta er svona helgi þar sem maður sefur út og gerir bara það sem maður kemur í verk og annað ekki mjög notalegt.

Valdi tók aðeins til í skúrnum í dag og fór 2 ferðir í Sorpu á meðan við  stelpurnar allar sinntum þessu daglega hér inni við Unnur Hrönn fengum svo gesti og hún fékk eina afmælisgjöf enn bók að lesa sem er gott.

Skruppum í Smáralindina já Unnur þurfti nú sitt laugardagsnammi og ætlaði að skipta 2 cd sem hún fékk í afmælisgjöf en voru til á heimilinu fyrir en það var ekki hægt þurfum að fara annað í það.

Svo fórum við út að borða þrjú í kvöld á Rosinberg hjá Dodda vini okkar mjög góður matur, stóru stelpurnar eru að passa á Selfossi en þangað förum við í  1 ársafmæli á morgun.

Annars er s.s bara allt rólegt hér á þessum bæ og komin tími til að fara að sofa.

Kveðja Lína

 

 


Komin mið vika hjá mér eins og Önnu vinkonu minni Ó á Fárskrúðsfyrði

Fór að læra að skera gler og búa til skálar og kökuföt í dag eftir vinnu bara gaman, sem ég fæ í hendur eftir helgi og ég er ákveðin í því að fara aftur svona hvort sem er með vinkonum eða öðrum fórum nokkrar úr vinnunni hjá mér í dag en það fóru einnig nokkrar fyrir jól og þvílík gleði og áhugi með þetta.

Annars voru að fara héðan nokkrir gestir sem sækja í það að heimsækja okkur og Ræða pólitík já þá  ........  tík.

Annars gengur allt sin vanagang hér þó matarveðið hækki og afborganirnar líka þá gengur þetta allt og maður vinnur sína vinnu, hefur sína heilsu og eyðir henni ekki í bumbuslátt , eggjakast  og eyðileggingu niður í bæ.

Stefnan er að fara að sjá Sólskinsdrenginn í bíó föstudagskvöldið þar sem við vorum svo heppin að fá boðsmiða í Kreppunni sem rennur út á laugardaginn að vísu.

Jæja hafið það sem best og reynið að brosa framan í heiminn og hugsa um að allt sem fer niður fer upp aftur.

Kveðja Lína

 

 

 


Afmælisveilsan heppnaðist mjög vel með tilheirandi hávaða og fjöri

Já í dag sunnudag (komin mánudagur samkvæmt klukku) héldum við uppá afmælið hennar Unnar Hrannar hjá Börkunum í Hafnafirði það var hamast í tæpan 1 og 1/2 klukkutíma á trampólíni í gryfjunni og  fleira og margir ansi sveitir , þyrstir og svangir á eftir því eins gott að hafa nó að borða og drekka en í boði var 30 tommu pizza og svo fótboltaterta á eftir ásamt safa og gosi sem rann ljúft í hressa og orkumikla krakka.

Unnur Hrönn naut dagsins og fékk nokkur þúsund krónur samanlagt í afmælisgjöf ásamt fullt af fallegum gjöfum en sjálfur afmælisdagurinn er á morgun (mánudag) frá kl.13:04 og eigum við von á einhverjum gestum seinnipartinn og annað kvöld.

En á laugardaginn fórum við í Smáralindina þar sem að Unnur Hrönn verslaði sé skó með hjólum undir fyrir pening sem hún hefur safnað með því að selja flöskur og dósir og einhvern aur átti hún eftir síðan hún varð 9 ára minnir mig.

En á miðvikudaginn er ég að fara á glernámskeið (geri 3 til 5 hluti frekar stóra) eftir vinnu í ca 3 tíma og í saumaklúbb um kvöldið og annan hóp hitti ég svo eða við hjónin á fimmtudagskvöldið og svo þurfum við endilega að fara og sjá Sólskinsdrenginn.

En á laugardagskvöldið fór ég í Valsheimilið og hitti Valda á Flokksþingi og borðaði með honum góðan mat og dansaði fram á nótt Upplyfting lék fyrir dansi , skemmti mér konunglega og skutlaði svo einu pari heim (sparaði þeim Taxa já það er kreppa)

Jæja best að hætta þessu og koma sér í hátinn egið góða viku framundan kæru vinir og leynigestir.

Kveðja Lína

 

 

 

 

 


Tiltektardagur í dag veislu dagur á morgun

Góðan daginn.

Já stefni að því að vera heima við í dag við ýmiskonar tiltekt og bakstur jafnvel.

Á morgun seinnipartinn verður Unnur Hrönn með bekkinn sinn og fleiri krakka í afmælisveislu í tilefni af því að hún verður 10 ára á mánudaginn litla barnið mitt hugsa sé hvað þetta líður allt saman.

Svo ætla ég nú bara að eiga eitthvað hollt og gott að borða seinnipartinn á mánudaginn fyrir þá sem vilja droppa við í tilefni dagsins eins og hefur verið í gegn um tíðina vinir og vandamenn.

Vaknaði óvenju snemma í dag á laugardegi en Valdi er á Flokksþingi alla helgina og er búin að vera mikið að heiman við undurbúning þess sl. daga og vikur tvær.

Hafið það sem best Kveðja Lína

 

 

 


Helgin var góð

Já var mikið heima við að pakka niður jólaskrauti, gestagangur og næturgestir, bakaðar pönnsur og fleira eldaði líka geggjaðan kjúklingarétt  Bringur, salsasósa, kókosmjólk og grænmeti allt sett saman í form eða pönnu og elda í 45 mín mjög gott, meðlæti eftir höfði hvers og eins en þetta er alveg nó.

Unnur Hrönn var að byrja að æfa fótbolta í dag og ætlar að hætta í fimmleikum það er svo svakalegur fótboltaáhugi í hennar bekk hjá stelpum og strákum.

Já við jafnöldrur úr Borgarnesi og makar hittumst svo á laugardagskvöldinu heima hjá Áslaugu það var bara gaman frá kl.20 og fram á nótt en við erum 8 og mættum allar en ekki nema 5 makar af 7 en alltaf jafn gaman þegar við hittumst.

En komin tími á að fara að elda fisk og hætta þessu tölvuhangsi.

Kveðja Lína

 

 


Jólin á enda og allt að komast í fastar skorður eftir frí og mikið át

Já alltaf bara svolítið gott þegar allt fer í sínar föstu venjur eftir yndisleg frí sem maður jú vill helst alltaf að sé lengur.

Vinna og skóli komið í gang hjá öllum á mínum bæ en jólin verða nú bara tekin niður í rólegheitum hér og lokið vonandi um næstu helgi bara ekkert stress.

Margt framundan boð á laugardagskvöldið, styttist í afmæli þeirrar yngstu (19.jan) sem búið er að plana og mikil spenna yfir því og boðskortin á leiðinni til viðkomandi aðila á sama aldri t.d bekkjarfélaga og frændsystkina.

Já ég hef s.s ekkert að segja.

Kveðja Lína

 


Gleðilegt ár 2009

Já nýtt ár er gengið í garð og hér erum við búin að eiga róleg og notaleg áramót fjölskyldan.

Byrjuðum í Bruch á hádegi í gær hjá Jónsa og Auði eftir að hafa skroppið í 2 búðir annarvegar til að skipta bók og svo að kaupa einn áramótavönd.

En eftir bruncið fórum við í Partýbúðina sem var opin til kl.17 og komum aðeins við í matvörubúð þar sem vantaði aðeins uppá meðlætið en við vorum með fyllt lambalæri  og tilheirandií gærkvöld og kalkún í kvöld nýjársdag og mamma og pabbi komu í mat allt saman reglulega gott og vel heppnað.

Hér var útsýnið yndislegt í gærkvöldi og langt fram á nótt sváfum hvert öðru lengur í dag og klæddum okkur um miðjan dag allir svo afslappaðir við lestur og sjónvarpsgláp.

Ég er í fríi á morgun fer því ekki að vinna fyrr en á mánudaginn það er nú voðalega ljúft.

En enn og aftur Gleðilegt ár og farsælt komandi ár elskunar Lína

 


Gleðilega jólarest og takk fyrir fallegar gjafir og kveðjur

Já héðan er allt gott að frétta.

Komum heim úr Borgarnesi í dag en fórum þangað á jóladag í boð eftir boð 2 daga í röð og enduðum í sjósundi í gær í Straumfirði og að þessu sinni tóku 11 manns þátt.

En hér var mikið gaman og mikið fjör á aðfangadagskvöld mikið af kortum og pökkum og allir sælir með sitt fallega og fína til að lesa, klæðast og fleira þó einhverju smotteríi þurfi að skipta.

En vinna á morgun og hinn og svo frí til 5.jan.2009 vinkona okkar ung frá Sauðarkróki ætlar að koma á morgun og fá að vera eina nótt en hún er í æfingarbúðum í bænum í Körfubolta það verður gaman að hitta hana tala nú ekki um ef henni og dætrum mínum eldri gefst tími til að fara í bíó eða eitthvað annað kvöld.

Áramótin ekkert plönuð að öðru leiti en því að vera heima allavega á miðnætti að skjóta og njóta útsýnisins.

Jæja hætt þessu pikki

Kveðja Lína

 

 

 

 

 


Skötuveislan í skúrnum heppnaðist vel og komu tæplega 20 manns

Já slapp úr vinnunni rétt fyrir kl.15 í dag og fór þá á nokkra staði 2 staði með gjafir aðeins í búð og Efnalaug var komin rúmlega 16 heim. Frábær skötuveisla og bara gestagangur fram eftir kvöldi nó uppvask og tiltekt eftir það en bara gaman.

Förum í kirkjugarðinn í fyrramálið, skreppum með gjöf á einn stað og svo getur maður bara sinnt sjálfum sér og jólasteikinni.

Gleðileg jól kæru vinir og ef ég gleymdi að senda ykkur jólakort þá vonandi afsakið þið það og takið þessari kveðju.  Jólaknússssssssssssss Lína


Jólin alveg að koma og ég er bara ekkert stressuð yfir því

Já sæl.

Fórum klukkutíma rölt á Laugaveginum í gær og enduðum á Sólon ásamt vinafólki okkar bara gaman Unnur Hrönn var með okkur einnig en stóru stelpunnar voru heima.

Annars er ég búin að vera að vinna í dag en Valdi og Unnur Hrönn að útrétta, versla skötuna, fara með nokkra konfektkassa, fara með tölvur í viðgerð, skipta seríu og fleira.

En s.s ekkert stress og bless

Lína

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband