Öskudagur kom á eftir sprengidegi já og bolludegi

Já þá er öskudagur að kveldi komin.

Já byrjaði morguninn á því að fara með Unni Hrönn (Walle Vélmenni ) að syngja á einum stað svo kom hún með mér til tannsa og ég skutlaði henni svo á 4 staði eftir það  og skildi hana svo eftir í Hamraborg og fór að vinna og hún söng sér inn fullt að nammi í tilefni öskudags og söng Sódóma með Sálinni hans Jóns míns og tókst vel til.

En eftir vinnu fór ég á annað glernámskeið hjá sömu konum og um daginn hrikalega gaman hlakka bara til að fá þetta úr brennslu (3 hlutir) svo fór ég í heimahús á snyrtikynningu og fékk að borða og axlarnudd ekkert smá næs.

En dagurinn á morgun verður nú mun rólegri þó ég fari jú auðvitað á Kaffi Mílanó eins og alltaf á fimmtudögum á meðan Unnur Hrönn er í söngskólanum.

En stefnan er að fara jafnvel dagsferð í sveitina á laugardag enda komin tími til að tékka á bústaðnum en á sunnudag þurfum við að vera í bænum Unnur Hrönn að fara að syngja í messu og við að hitta yndislegt fólk hjónin seinnipart sunnudags en viðbúið að stóru stelpurnar vilji njóta laugardagsins einar heima.

Styttist í fermingar 28. mars, 5.apríl , 9. apríl  og 19.apríl hjá vinum okkar og ættingjum sem við vitum um og það verður bara gaman nú á tímum á maður einmitt að vera duglegri sem ald. fyrr að rækta vini og ættingja.

Stefni á að bjóða litla saumaklúbbnum mínum heim á miðvikudaginn í næstu viku kl.21 sendi ykkur póst elskurnar.

Kveðja Lína

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband