Fórum á Selfoss

Jæja þá er búið að fara og skoða Írisi Örnu og auðvita foreldra hennar og systk. yndislega falleg og mikil hamingja og gleði hjá okkur öllum. Blindhríð þegar við vorum að koma til baka en komumst heil og höldnu þó að maður væri nú svolítið hræddur þar sem að sumir hægja einfaldlega of mikið á sér eru á miðjum vegi (óöruggir í snjó og hálku) og svo framvegis. En ég skellti mér samt í saumó í kvöld kl.að verða 22 og s.s nýkomin heim. Svo fer ég í hádeginu á morgun á hárgreiðslustofu sem ég hætti að fara á fyrir ca 5 árum en hún vinnur þar enn sem ég fór alltaf til þannig að ég hlakka bara til að sjá útkomuna. Best að koma sér í háttinn Góða helgi Lína fína appelsína

IMG_0957


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ skvís

hún er aldeilis flott, lillan hjá Gullu og Óla. Algjör dúlla, mér finnst hún nú ansi mikið lík móður sinni og stóru systur.  Skilaðu kærri kveðjur til fjölskyldunnar á Selfossi.

Kærar kveðjur úr vetrinum í Borgarnesi, mér finnst ég nú bara eins og á Sigló í gamla daga, allt á kafi í snjó og bylur úti, sést varla út um gluggana.

IMS

Inga Margrét Skúladóttir (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 09:59

2 identicon

myndarbarn þessi stóra frænka, áttu ekki fleiri myndir af henni? ég er að sjá hana í fyrsta skiptið á þessari mynd. ef þú átt meira máttu senda mér. mariaerlag@gmail.com

til hamingju með bloggið þitt.  

kv María Borgarnesi 

MaríaE (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:25

3 identicon

Fallegt nafn á fallegri dömu! Endilega skelltu fleiri myndum inn. Lára

Lára vinkona (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband