Sælar elskurnar mínar.
Jæja þá erum við komin heim eftir að hafa farið í Straumfjörð sl. fimmtudag við Dagbjört Helga fórum á fína polónum hennar í Borgarnes hún þurfti að æfa sig þó með prófið sé komin skildum hann svo eftir í Borgarnesi hjá Mömmu og Pabba héldum svo áfram í sveitina með restinni af fjölskyldunni og Siggi og Dóra fildu fast á undan okkur og drukku með okkur kaffi í bústaðnum og stoppuðu fram á kvöld voða notalegt.
Jónsi og Auður kíktu svo á okkur í kaffi á föstudeginum með matinn okkar sem við höfðum gleymt (hluta af honum)fyrir sunnan og komin var með öðrum leiðum í Borgarnes þar sem þau gátu tekið hann en þau voru í Munaðarnesi í bústað, í kvöldmat kl.18 komu svo Óli og Maggý ásamt vinkonu sinni og borðuðu með okkur Kjúkling og meðlæti og jú auðvita desert á eftir.
Og þegar þau voru farin brunuðum við Valdi á Skagaströnd til vinafólks (sem við gistum einnig hjá )áður en að við fórum á ball í Kántrýbæ þar sem að hljómsveitin Janus lék fyrir dansi e.m en Gummi Jóns gítarleikari sálarinnar er í þeirri sveit og komum við svo seinnipart laugardags til baka í sveitina en dæturnar höfðu bjargað sér vel í sveitinni en þar voru líka bræður mínir í næstu húsum og fjölskyldur.
Logi 30 ára bauð til veislu kl.20 á laugardagskvöld í húsi föður síns í sveitinni og nutum við góðra veitinga þar svo var sofið út og slappað af í bústaðnum í gær páskadag en foreldrar mínir komu í mat í gærkvöld en þau höfðu verið veik og listarlaus dagana á undan.
Gengum svo frá og drifum okkur í Borgarnes um hádegi í dag þar sem að Steina Rún afmælisbarn (16.ára) vildi ekki koma seint heim við Dagbjört Helga fórum aftur Hvalfjörðinn og gekk vel á hennar líka fína Polo.
Um kl.17 sótti ég Emmu og prinsinn hennar þar sem þau vildu koma í heimsókn en voru bíllaus en voru svo sótt um kl.20 í kvöld og við bara hér heima í rólegheitum að glápa á sjónvarpið og þvo þvottinn og Steina Rún að svara í síman og svara sms frá vinkonum.
Góða vinnuviku kveðja Lína
P.S set kannski inn myndir á eftir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 29313
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk æðislega fyrir skutlið í gær, gaman að koma í heimsókn og fá gúmmilaði eins og þér einni er lagið að hrista fram úr ermunum.
Kv. Emma
Emma og sjarmatröllið (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 13:01
takk fyrir helgina - bara stuð
og skilaðu ammæliskveðju til skvísunnar þó seint sé
Erla Margrét Gunnarsdóttir, 25.3.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.