Héðan er allt gott að frétta.
Labbaði heim úr vinnu í gær eins og alltaf nú orðið á þriðjudögum og fimmtudögum er að hugsa um að bæta jafnvel mánudögum við þar sem að söngskólanum er lokið í bili hjá Unni Hrönn sem var alltaf á mánudögum og ég þurfti að skutla eðlilega barnið er bara 9 ára og Söngskólin í Faxafeni.
Fengum gesti seinni partinn fórum einnig sjálf í hús í gærkvöld.
En í morgun þegar ég ætlaði á bílnum þá var sprungið að framan ný dekk sem sett voru undir á mánudag þannig að ég fékk bara lánaðan bíl hjá dóttur minni og hringdi í Sólningu og þeir græjuðu málið áður en að ég kom heim úr vinnu í dag eðlilega feill hjá þeim.
Skrapp í Ikea í hádeginu í dag alltaf gaman en fer nú frekar sjaldan samt.
Unnur Hrönn fór í fimmleika búin að missa af 2 eða 3 síðustu tímum vegna utanlandsferðar og fleira þannig að við ætlum sko ekki í bústaðinn fyrr en eftir æfingu hjá henni á laugardag sýning í lok mánaðarins og um að gera að æfa sig sko.
Já saman með mig fór í leikfimi var búin að missa úr 2 tíma erfitt en gaman.
Steina Rún er að klára prófin á morgun fer í óvissuferð í sólahring, svo á náttfataball aðfaranótt laugardags og stelpuboð á laugardag og Dagbjört Helga klárar prófin á þriðjudag.
Þannig að þær fá vonandi næga vinnu svo til að geta safnað smá sjóð fyrir ferðina okkar til York á Englandií enskuskólann 22.6 til 6.7.2008
Kveðja Lína
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kvitt kvitt og takk fyrir síðast, var mjög notalegt að koma í smá heimsókn
Knús Emma
Emma (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 12:10
Kvitt, kvitt, kæra vinkona.
Heyri í þér um helgina.
Knús úr nesinu
IMS
Inga Margrét Borgarnesi (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.