Löng helgi farmundan og stutt vinnuvika þar á eftir er þetta ekki dásamlegt líf?

Halló kæru vinir sem kvitta og ekki kvitta.

Hér á bæ er alltaf nó að gera en í gær ætluðum við aldeilis að grilla í góða veðrin Valdi verslaði góðgæti á grillið en viti menn þegar hann fór svo bak við hús og ætlaði að grilla eins og við gerðum í mars sl. (s.s höfðum ekki frillað síðan) þá var búið að stela gaskútnum AngryHow low can you co Wounderingvið urðum orðlaus og elduðum því matinn bara inni í þetta sinn verslum væntanlega annan kút og lás svei mér þá.

En í gær labbaði ég heim úr vinnu í merktu vesti (Actavis) því nú er hjólað í vinnuna og þá telur líka hjá okkur sem löbbum og fengum við svona endurskins vesti og þvílíkt sem fólk horfi á þessa kerlingu  um hábjartan dag í sól og sumarblíðu labbandi í endurskinsvesti. Grin

Annars var Steina Rún að koma úr stórlostlegri óvissuferð sem hún fór í  gær og er á leið á náttfataball rosalega gaman að vera búin í samræmdu prófunum.

Kíkti á skómarkaðinn í Perlunni  í dag og fékk þessa fínu ecco sandala á okkur Unni Hrönn fyrir sumarið.

Embla Sól frænka ætlar að koma með okkur í bústaðinn á morgun það verður ald. gaman hjá henni og Unni Hrönn þeim finnst svo gaman að leika saman 2 ár á milli þeirra.

Þannig að ef þið eruð á ferðinni eða í ferðahug þá er hægt að koma við í kaffi eða mat hjá okkur kæru vinir og vandamenn.

Góða helgi Lína

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þvílíkir drullusokkar eru það sem arka um garða fólks og stela gaskútum !!!
Ég var ekkert smá gáttuð á þessu þegar þú sagðir mér frá því.
Var einmitt að velta fyrir mér hvort ég ætti að setja lás á kútinn hjá mér þó svo að það sé bara vika í að við verðum kominn á 3 hæð og þá er nú ekki hægt að stela gaskútnum svo auðveldlega

Hafðið þið sem allra best í sveitinn um helgina.

Kv. Emma og kassahrúgan

Emma (IP-tala skráð) 10.5.2008 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband