Halló allir saman.
Já mín er að fara í foreldrarölt í kvöld frá kl.22 til 24 já mjög gott forvarnarstarf sem hefur virkað vel hér í bæ.
Annars var foreldrakvöld í skólanum hjá Unni Hrönn kl.18:30 til 20 í gær þar sem börnin sýndu okkur verkefnið Í sveitinni þar sem okkur var sagt frá nokkrum bæjum ,bóndum, vinnufólki ,börnum baranabörnum og dýrum allir komum með eitthvað á hlaðborð og nutu góðrar stundar með börnum og foreldrum.
Á miðvikudagskvöldið eftir leikfimi var mér boðið ásamt nokkrum öðrum konum í Sjávarréttarsúpu til einnar sem var með okkur á námskeiði einu sinni og við hittumst reglulega hún er komin í nýja flotta íbúð rosalega gaman að sjá.
Á þriðjudagskvöldið fór ég í saumó það er alltaf svo gaman og yndislegt það var auðvita 100% mæting en þetta var bara einn klúburinn af mörgum sem ég er í, sem er komin í frí fram í sept.
Fyrir utan þetta er ég auðvitað búin að sinna vinnu og heimilli fara til augnlæknis, húðlæknis og fleira labbaði heim í dag úr vinnunni 55 mín bara hressandi stefni að því að labba 3 daga í næstu viku heim.
Góða helgi elskunar búin að setja inn fleiri myndir undir sumarhúsið og dætur mínar
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ Hæ
Þú færð 10 fyrir að vera svona dugleg að ganga í vinnuna . Við erum bara að fara í sauðburð í dag svo beint í sund. Þetta verður svo gaman Eyþór frændi er hjá okkur svaka stuð hér á bæ.
Bæjó Auðbjörg
Auðgjörg (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 08:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.