Halló allir saman.
Héðan er allt gott að frétta já hin nýflutta Emma á afmæli í dag til hamingju vinkona og stefni ég nú á að fara og kíkja á hana seinnipartinn í dag eða kvöld og sjá hverju mikið hefur gerst frá því að þau fluttu sl. sunnudag en ég veit að hún /þau hafa sko ekki verið aðgerðarlaus.
Stefnan er tekin á Straumfjörð en mörg boð eru í boði bæði hjá mér og Unni Hrönn þannig að það er spurning hvort Valdi fari á undan okkur eða hvað en næstsíðasti fimmleika tíminn er á morgun hjá Unni og svo sýning eftir viku, afmæli hjá bekkjarbróður hennar um miðjan daginn á morgun og svo framvegis.
Búið var að undirbúa mig fyrir saumó sem ætti að vera jafnvel í Njarðvík í kvöld, bíð eftir nánari upplýsingum, vinur minn og okkar búin að bjóða okkur hjónum í partý annað kvöld og svo framvegis en þetta verður maður allt að vega og meta en þar sem að aðalvinnan hefst væntanlega ekki um helgina í sveitinni þá er ekki stór mál þó maður komi annað kvöld en Valdi hefur alltaf einhvernvegin meiri verkefni en ég samt þarna í sveitinni svona karlamannsverk sem ég gæti jú örugglega gert ef hann væri ekki til þess.
Kveðja Lína
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Risaknús, takk fyrir allt á afmælisdaginn og alla hina dagana.
Kv. Emma enn í málningargallanum
Emma (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.