Já kannski ég bloggi smá núna.

Halló kvittgestir og laumu gestir.

Miklar annir og erfiðleikar voru hér í síðustu viku en allt að komast í samt lag og mín búin að fara til útlanda og skemmta sér konunglega (um síðustu helgi) meiri segja hægja miklu, miklu meira en ég hef gert í langan tíma hefði kannski betur sótt um þegar auglýst var eftir mest smitandi hlátri um daginn í blöðunum.

En við fórum í frábært boð í Guildford sl. föstudagskvöld og fórum svo til London á laugardeginum spókuðum okkur fórum flott út að borða laugardags og sunnudagskvöld ég gat sofið út alla dagana en ekki Valdi hann þurfti að mæta á fund á laugardagsmorgninum.

Labbaði heim úr vinnu í gær og aftur á morgun vonandi.

Stelpurnar allar að klára skólann þessa dagana, Dagbjört að vísu búin og farin að vinna  heima og utan heimilis.

Stefnum í bústaðinn um helgina en óðum styttist í að við förum til York Ég, Dagbjört og Steina Rún bara tæpar 3 vikur í það.

Unnur Hrönn byrjaði í skólagörðunum í dag en fer einnig á nokkur námskeið hjá Gerplu í sumar fyrir utan að fara í sumarfrí með okkur.

Jæja hætt að sinni og farin að gera eitthvað að viti.

Kveðja Lína

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Hæ göngu garpur.

þú ferð að slá Reyni Pétri við á Sólheimum sem gekk í kringum landið. Ég er voða stolt af þér . Verðum að fara að taka eitt létt símtal ef það er smá næði í vinnuni bjallaðu þá á mig því ég er bara heima komin í frí jibbbi.

Kveðja Obba 

Auðbjörg (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband