Unnur hressari í dag en í gærkvöld

Já hún fór galvösk á sumarnámskeið Gerplu í dag þau fóru t.d með strætó uppá Árbæjarsafn rosalega ánægð með þá ferð þó ekki í fyrsta skipti sem hún fer þangað en alltaf jafn gaman.

Mín fór í lit og plokk í dag já alltaf eitthvað verið að gera síg fína er nú að fara í fertugs afmæli eða 100 ára afmæli á laugardaginn en vinkona mín er fertug á morgun maðurinn hennar 2.des og þau hafa verið saman í 20 ár öllu slegið saman í eina veislu og ég veit að það verður bara flott og gaman hjá þeim.

Unnur Hrönn er löngu sofnuð ætlar greinilega að vera vel út hvíld fyrir morgundaginn.

Jæja hætt að sinni kær kveðja Lína


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband