Já litli saumó fór ásamt mökum í Byrkjó til Friðbjargar og Gumma og það var auðvitað tekið vel á móti okkur með súpu og góðgæti, spjallað saman og haft það huggó þangað til að við fórum í pottinn að hafa það huggó þangað til að var farið að undirbúa matinn og hafa það áfram huggó þar sem borðaður var humar og tilheyrandi í forrétt og svo var hreindýr og lamb ásamt meðlæti og svo yndislega sætur deset á eftir á bragðið sko annað var sagt um útlitið sem ekki verður haf eftir hér og af drikkjum var nó ó já en allt í hófi þó.
Svo drifum við Valdi okkur í Straumfjörð og Borgarnes í framhaldinu þar sem að við fengum gefins folaldakjöt til margra vikna nýtt og ljómandi gott erum s.s búin að smakka það.
Vorum komin heim á skikkanlegum tíma þar sem að við áttum von á gestum norðan úr Aðaldal í heimsókn en náðum að sækja Unni Hrönn fyrst til frænku sinnar og stóru stúlkurnar sáu til þess að húsið væri mönnum bjóðandi.
Kveðja Lína
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 29284
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Huggó,huggó! Það er nú bara smá öfund hérna megin, ekki það að ég get farið í heitan pott og verið í góðum félagsskap (bróðir-Súpermann) en maturinn ...oooooooooooooo hljómaði allveg guðdómlega
Hafðu það gott og ekki gleyma að njóta þess að vera heima, því heima er best
K.kv.Anna Ó og co.
Anna (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.