Vinna, Kaffihús og matargestur

Já eftir vinnu fór ég að hitta eina góða konu á kaffihúsi á meðan Unnur Hrönn var í söngskólanum dreif mig svo heim þar sem að við vorum búin að bjóða Jóhönnu mákonu að koma í mat til okkar og það var bara notalegt.

Verð heima við um helgina förum að vísu í tveggja tíma ferð með bekknum hennar Unnar Hrannar á sunnudaginn sem bekkjarfulltrúarnir standa fyrir alveg nauðsleg nú á tímum sem og öðrum.

Stóru stelpurnar voru í bíó með 1/2 systur sinni sem býr á Blönduósi og skemmtu sér konunglega það er svo dásamlegt hvað þær halda hver uppá aðra.

Jæja best að gera eitthvað að viti fyrir svefnin.

Kveðja Lína

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eigðu góðan föstudag og góa helgi elsku Lína, o. það getur nú líka verið notalegt að vera BARA heima, knús á ykkur frá okkur í firðinum fagra

Anna Ólafs (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 23:51

2 identicon

Góða helgi vinir frá Ísó

Auðbjörg (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband