Kjólinn tilbúin og var að koma úr huggulegum saumó

Já Rakel vinkona mín stóð sig vel í að hjálpa mér með kjólinn saumavélin bilaði í gær og var því fengin önnur vél að láni til að klára hann í kvöld.

Var svo að koma úr Saumó hjá Hjördísi vinkonu minni til margra ára og mæting var bara góð notaleg stund með góðum konum.

Næg verkefni um helgina eins og hjá öllum öðrum held ég svona rétt fyrir jól fer í tvennskonar dekur á morgun í hádeginu og eftir vinnu, jólahlaðborð á laugardagskvöldið, framkvæmdir heima við laugardag og sunnudag sem líkur með matarboði hér á sunnudagskvöldið.

Gaf fullt af veskjum og töskum til Stigamóta í dag heilmikil tiltekt í forstofuskápnum við það.

Góða nótt Lína

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband